Framleiðsla og hönnun

Framleiðsla og hönnun
Ertu að gefa út CD/DVD?
Framleiðslu og hönnunardeild Stúdíó Sýrlands hefur margra ára reynslu í gerð kynningarefnis af öllu tagi, hvort heldur er fyrir prent- eða ljósvakamiðla. Við fylgjum öllum okkar verkefnum vel eftir og með hagstæðum samningum við prentsmiðjur og ljósvakamiðla sjáum við til þess að útkoman verði eins og best verður á kosið.
Stúdíó Sýrland hefur um nokkurt skeið framleitt DVD og geisladiska í samvinnu við SONY DADC í Austurríki sem tryggir hámarksgæði og öryggi. Við sjáum um allt ferlið þar til varan er komin í hendur viðskiptavinarins. Einnig erum við með fjölföldunargræju innanhús sem gerir okkur kleift að framleiða smærri upplög á hagstæðu verði og með töluvert skemmri afgreiðslutíma.
Hér í undirflokkunum til vinstri er hægt að nálgast algengustu snið fyrir DVD og CD umbúðir.
Hikaðu ekki við að hringja ef þig vantar aðstoð - við erum við símann!
