Hljóðver

Hljóðver
Sýrland rekur fimm hljóðver, sem hvert um sig er vel tækjum búið og hefur á að skipa færustu tæknimönnum sem völ er á. Margir af okkar þekktustu listamönnum hafa hljóðritað plötur sínar hjá fyrirtækinu í gegnum árin. Alþjóðlegar stórstjörnur hafa líka verið tíðir gestir í Sýrlandi og má þar nefna Björk, Blur, Damon Alban, Morten Harket og Sigurrós sem tók upp plötuna “Ágætis byrjun” í Sýrlandi.
Sýrland hefur einnig hljóðritað og hljóðblandað marga af þeim stórtónleikum sem haldnir hafa verið hérlendis undanfarin ár og má þar t.d. nefna Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Náttúrutónleika Bjarkar og Sigurrósar í Laugardalnum, Þursaflokkinn og Caput í Laugardalshöll, Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands í Laugardalshöll, Frostrósir og ofl.
Sýrland hefur innanborðs marga fyrsta flokks hljóðupptökumenn og má þar nefna Svein Kjartansson, Guðmund Kristin Jónsson (Kidda í Hjálmum), Daða Birgisson, Aron Þ. Arnarsson, Hafþór Karlsson (Haffi Tempo), Baldvin A B Aalen, Kristin Sturluson, Friðrik Sturluson, Styrmi Hauksson, Pál Svein Guðmundsson, Jósef Smith, Gunnar Valdimarsson, Ívar Baldvin Júlíusson, Friðjón Jónsson og Jón Val Guðmundsson.
