Stúdíó Eitt

Stúdíó Eitt 

Caput, Stórsveit Reykjavíkur, Hjaltalín ...

Í höfuðstöðvum Stúdíó Sýrlands í Vatnagörðum er að finna stærsta og jafnframt einn besta upptökusal landsins. Salurinn er 250 fm og getur nýst bæði í stórar og smáar upptökur. Salnum fylgir rúmgott control herbergi hlaðið tækjabúnaði á heimsmælikvarða auk vopnabúrs af hljóðnemum sem eiga sér fáar hliðstæður. Hvort sem um er að ræða 50 manna sinfóníuhljómsveit, jazztríó, einleikara eða rokkhljómsveit þá er góður hljómburður og rými salarins tilvalið í flest verkefni.  Aðstaðan er öll hin besta og reynt er eftir fremsta megni að skapa hlýlegt umhverfi fyrir þá listamenn sem vilja hafa notalegt andrúmsloft meðan sköpunargáfan er beisluð á varanlegt form.  Í salnum er til afnota Baldwin Concert Grand flygill sem þykir hafa einstakan og þykkan hljóm.