Sýrland í Hafnarfirði

Sýrland í Hafnarfirði
Hjálmar, Hjaltalín, Memphismafían, Baggalútur og Prófessorinn ...
Sýrland Hafnarfirði (Hljóðriti) er eitt elsta og virtasta hljóðver landsins. Upprunalega stofnað árið 1975 af framsæknum frumkvöðlum. Hljóðriti var til langs tíma helsta hljóðver landsins og þótti á sínum tíma jafnast á við það besta sem gerðist erlendis. Hljóðriti hætti starfsemi um tíma en var opnaður að nýju árið 2004 undir merkjum Sýrlands og hefur síðan vaxið ásmegin í umsjón Kidda í Hjálmum. Þegar Hljóðriti var opnaður aftur var þess gætt að gamlar innréttingar og skreytingar fengju að halda sér svo að andi liðinna tíma fengi að svífa yfir vötnunum.
