Sýrland Mastering (Írak)

Sýrland Mastering (Írak) 

Masteringar eru lokahnykkurinn í að gera góða upptöku betri – þá fer upptakan í lokavinnslu þar sem síðustu smáatriðin eru fínpússuð til að fullkomna listaverkið.

Írak er eina sérhannaða masteringarhljóðver landsins, útbúið tækjum í hæsta gæðaflokki fyrir bæði stereo og surround masteringar.

Írak hefur verið leiðandi í sínu fagi síðustu 15 árin og hafa ófá meistaraverkin verið “masteruð”  í Írak í gegnum tíðina.