Námskeið í samst. við VMST

Námskeið í samst. við VMST 

Tónlist – Kvikmyndagerð - Leiklist

Stúdíó Sýrland býður nú upp á fjölbreytt námskeið í samstarfi við Vinnumálastofnun UFA og ÞOR. Þar kynnast þátttakendur vinnu við mismunandi listgreinar og tæknivinnu þeim tengdum. Námskeiðið er blanda af fyrirlestrum, styttri námskeiðum og viðtölum. Áhersla er lögð á að sýna þátttakendum fram á möguleika við að skapa sér atvinnutækifæri með þjálfun og þekkingu, í þessu tilfelli tengt listum. Mikil áhersla er lögð á að hver þátttakandi sé virkur í öllu ferlinu og að sveigjanleiki sé fyrir hendi til að enginn sitji eftir í einstökum námsgreinum. Leitast er við að hver og einn ráði við þau verkefni sem lögð eru fyrir.