Pro Tools námskeið

Pro Tools námskeið
Námskeiðið heitir “Pro Tools - Frá hugmynd að lagi” og er alls 20 tímar í 5 lotum (laugardagar).
Næsta námskeið hefst 28. janúar og stendur til og með 25. febrúar 2012.
Fjöldi kennslustunda: 20
Lengd kennslustundar: 60 mínútur
Lotur: 5 laugardagar 4 kennslustundir.
Fjöldi í hóp: 20
Verð: 49.900
Staðfestingargjald er 9.900
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Inntökukröfur
Þátttakendur verða að hafa aðgang að Pro Tools til að vinna verkefni heima. Æskilegt er að það sé Pro Tools 8 eða ofar en það er ekki nauðsynlegt. Nemendur verða að hafa þokkalega tölvukunnáttu, vera með lagahugmynd og að sjálfsögðu áhuga.
Námsáætlun
Kennari : Kristinn Sigurpáll Sturluson, upptökustjóri - kennari
Vika 1
Pro Tools upptökukerfi opnað og skoðað
Helstu verkfæri skoðuð
Hvernig stillir maður kerfið fyrir upptöku
Skrats grunnur (kassagítar og söngur) tekinn upp með click trac
Vika 2
Skrats upptaka frá síðasta tíma opnuð
Midi trommugrunnur búinn til með Xpand (sampler)
Midi bassi búinn til með Xpand
Midi píanó búið til með Mini-grand (Píanó hermir)
Midi orgel búið til með DB-33 (Hammond hermir)
Midi synth lína búin til með Vacuum (virtual synth)
Structure free samplerinn notaður til að sampla lúppur
Vika 3
Kassagítar tekinn upp
Rafmagnsgítar tekinn upp (eleven free amp simulator)
Söngvari kemur og syngur inn lead söng og raddir
Edit unnið jafnóðum
Vika 4
Lagið mixað (automation)
Helstu plug-in skoðuð
Lagið masterað og keyrt út sem wav og mp3 (bounce)
Vika 5
Nemendur koma með sín lög mixuð
Kennari fer yfir lögin með þeim
Allir gefa álit
Kennari gefur hints
Kveðjuhóf
