Talsetningarnámskeið
Talsetningarnámskeið
Skráðu þig núna á bokanir hjá syrland punktur is eða hringdu í 563-2910 á skrifstofutíma. Takmarkaður fjöldi. Minnum á frístundakortið.

Langar þig að talsetja teiknimyndir?
Hefur þig alltaf langað til þess að sýna hvað í þér býr?
Undanfarin ár höfum við staðið fyrir námskeiðum í talsetningu fyrir börn, unglinga og fullorðna við góðar undirtektir. Mörg þeirra barna og unglinga sem sótt hafa námskeið hjá okkur í talsetningu hafa fengið tækifæri til að tala inn á teiknimyndir, bæði fyrir sjónvarp og kvikmyndir.
Barna og unglinganámskeið
Kennd eru undirstöðuatriði í radd- og talþjálfun. Farið er í skemmtilega leiki sem skerpa einbeitingu og snerpu. Börnin fá leiðbeiningar í upplestri og svo síðast en ekki síst kennslu í talsetningu. Þátttakendur talsetja teiknimynd og þeir sem vilja fá að syngja í stúdíói, einnig tökum við upp raddir allra til að eiga í raddbanka.
Fjöldi kennslustunda: 10
Lengd kennslustundar: 60 mínútur
Tími:
Mánudagar kl. 17.15 - 19.15(9 - 13 ára)
Þriðjudagar kl. 17.15 - 19.15(9-13 ára) og 19.30 - 21.30(14 - 18 ára)
Miðvikudagar kl. 17.15 - 19.15(9-13 ára) og 19.30 - 21.30(14 - 18 ára)
Dagsetningar: Byrja í vikunni 23. - 27. janúar 2012
Hámarksfjöldi í hóp: 12
Aldur: 9 - 13 ára og 14 - 18 ára
Verð: 29.900
Staðfestingargjald er 4.900.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Skráðu þig núna á bokanir hjá syrland punktur is eða hringdu í 563-2910 á skrifstofutíma.
Við bendum á að Stúdíó Sýrland er aðili að Frístundakorti ÍTR.
Námskeið fyrir fullorðna.
Fullorðinsnámskeiðin eru með svipuðu sniði og barnanámskeiðin. Kennd eru undirstöðuatriði í raddþjálfun og framsögn auk þess sem farið er í skemmtilegar æfingar, persónusköpun og talsetningu.
Námskeiðin eru haldin á laugardögum, kennt er í 3 klst í senn en einnig er tekið eitt síðdegi í að klára upptökur í hljóðveri ef þarf.
Fjöldi kennslustunda: 10
Lengd kennslustundar: 60 mínútur
Hámarksfjöldi í hóp: 12
Tími:
Fimmtudagar kl. 17.30 - 20.30.
Laugardagar kl. 10.30 - 13.30 og 14 - 17.
Dagsetningar: Byrja 26. og 28. janúar 2012 (Kennt verður 3 fimmtudaga/laugardaga í röð)
Verð: 29.900
Staðfestingargjald er 4.900.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Skráðu þig núna á bokanir hjá syrland punktur is eða hringdu í 563-2910 á skrifstofutíma.
Talsetningarnámskeið – FRAMHALDS
Nú bjóðum við einnig upp á framhaldsnámskeið fyrir þá sem hafa sótt talsetningarnámskeið hjá okkur á síðustu misserum.
Á framhaldsnámskeiðum í talsetningu verður það höfuðmarkmið að halda áfram þeirri þjálfun sem hófst á byrjunarnámskeiði. Áhersla verður lög á að skerpa á leik– og framsagnartækni og bæta við söngkennslu.
Í aðalatriðum verður farið í:
Leiklistaræfingar (framhald)
Spunaæfingar (nýtt)
Söngkennslu (nýtt)
Talsetningu á efni (framhald)
Framsögn (framhald)
Verð : Óákveðið
Að námskeiðum loknum fá allir þátttakendur viðurkenningarskjal, DVD disk með efninu sem þeir talsettu, söngnum og raddprufu.
Þátttakendur á námskeiðum í talsetningu eiga möguleika á að komast að í talsetningu á teiknimynd fyrir sjónvarp eða kvikmyndahús.
Skráðu þig núna á bokanir hjá syrland punktur is eða hringdu í 563-2910 á skrifstofutíma.
Við bendum á að Stúdíó Sýrland er aðili að Frístundakorti ÍTR.
Vekjum athygli á gjafakortum! Það er tilvalið að gefa börnum, barnabörnum, mömmu, pabba, afa og ömmu talsetningarnámskeið í jólagjöf.
