Tölvuverið

Tölvuverið 

Nú hefur Stúdíó Sýrland uppá að bjóða fullkomna tölvustofu sem bæði nýtist til kennslu og leigu. Það er markmið Stúdíó Sýrlands að vera leiðandi þegar kemur að tækjabúnaði og aðstöðu, tölvuver fyrirtækisins ber þess glögg merki.  Í því eru 20 nýjar og öflugar Apple tölvur sem henta vel til ýmiskonar skapandi verkefna þar sem krafist er nýjustu tækni og góðrar aðstöðu. Tölvuverið er m.a. notað við kennslu í Hljóðtækninámi Tækniskólans og Sýrlands. Auk þess sem aðstaðan gerir Stúdíói Sýrland kleift að halda námskeið í upptökum, í kennslu á upptökuforritum og í annarri hljóðvinnslu með öflugri hætti en hingað til hefur verið mögulegt á Íslandi. Tölvuverið hentar líka vel við kennslu á myndvinnslu- og grafíkforritum. Hægt er að fá tölvuverið leigt út eitt og sér til námskeiðshalds hverskonar en einnig er hægt að leigja salinn og tölvuverið samhliða. Það gæti hentað stærri hópum þar sem hluti af hópunum væri í sal meðan hinn hlutinn væri í tölvuvinnslu.  Allar nánari upplýsingar og fyrirspurnum um tölvuverið er svarað í gegnum bokanir hjá syrland.is