Um Sýrland

Um Sýrland 

Haustið 2007 keyptu Þórir Jóhannsson og Sveinn Kjartansson Stúdíó Sýrland af Senu, dótturfyrirtæki 365, sem hafði rekið fyrirtækið um árabil.

Stúdíó Sýrland er starfrækt á 3 stöðum á höfuðborgarsvæðinu:

-Að Vatnagörðum 4 er Stúdíó Eitt (stóri salurinn) stærsta hljóðupptökustúdíó landsins. Þar eru einnig 3 stúdíó sérhönnuð fyrir talsetningar, kennslustofur og skrifstofur fyrirtækisins.

-Upprunalega Stúdíó Sýrland er að Skúlatúni 4 en þar eru 2 hljóðver.

-Að Trönuhrauni 4 í Hafnarfirði er Sýrland Hafnarfirði (gengur gjarnan undir nafninu Hljóðriti) en þar eru 2 hljóðver. Sérstök masteringarsvíta, Sýrland mastering (Írak) er einnig þar.

Stúdíó Sýrland býður auk þess upp á tvo sérhannaða upptökubíla.  Þeir hafa verið notaðir við upptökur víðsvegar um landið, m.a. á stórtónleikum í Laugardalshöll, tónlistarhátíðum og við ýmis konar tónlistarupptökur svo sem í kirkjum, tónlistarhúsum, félagsheimilum, íþróttahúsum og víðar.

Fyrirtækið hefur einnig yfir að ráða öflugri hönnunar- og framleiðsludeild sérhæfðri í hönnun og framleiðslu á cd/dvd diskum í samvinnu við Sony DADC í Austurríki.

Námskeiðahald og kennsla er líka stór þáttur í rekstri Sýrlands. Þar er um að ræða talsetningarnámskeið fyrir börn og fullorðna og upptökunámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Stúdíó Sýrland sér einnig um stærstan hluta kennslu í Hljóðtækni, sérstöku hljóðtækninámi sem kennt er í Tækniskóla Íslands en auk þess er Stúdíó Sýrland með sex vikna námskeið í leiklist, tónlist og kvikmyndagerð í samstarfi við Vinnumálastofnun.

Saga Sýrlands

Stúdíó Sýrland var stofnað af nokkrum félögum úr Stuðmönnum og Þursaflokknum á öndverðum níunda áratug síðustu aldar. Áður höfðu þeir rekið stúdíó sem kallaðist Grettisgat og var til húsa í bílskúr Egils Ólafssonar við Grettisgötu.  Stúdíó Sýrland fluttist í Skúlatún 4 árið 1988 og hefur verið starfrækt þar síðan.

Árið 1991 keypti Skífan sem þá var í eigu Jóns Ólafssonar athafnamanns (og nú vatnsframleiðanda) Stúdíó Sýrland af Agli Ólafssyni.

Á síðastliðnum árum hafa nokkur fyrirtæki í hljóðvinnslu runnið saman í eitt undir nafni Sýrlands en þau er auk Stúdíó Sýrlands, Hljóðsetning, Lotus Hljóð, Hljóðriti Hafnarfirði og Stafræna hljóðupptökufélagið.

Grjótnáman sameinast Sýrlandi

Grjótnáman var stúdíó sem rekið var inni í Súðavogi og var í eigu hljómplötuútgáfunnar Steinars. Þegar Skífan og Steinar sameinuðust sameinaðist Grjótnáman rekstri Sýrlands og var það rekið sem einskonar B-stúdíó.

Árið 2004 var Grjótnámunni lokað og tækjabúnaðurinn fluttur til Hafnarfjarðar í húsnæði, sem áður hafði hýst hið fornfræga hljóðver Hljóðrita.  Í dag er starfsemin þar undir nafninu Sýrland Hafnarfirði þó svo að margir kalli það ennþá Hljóðrita með vísan til sögunnar.

Hljóðsetning

Hljóðsetning ehf. var stofnuð haustið 1995 af þeim Erni Árnasyni, Sigurði Sigurjónssyni, Jóhanni Sigurðarsyni og Stefáni Hjörleifssyni. Fyrirtækið hóf rekstur sinn í Sóltúni 24 og voru fyrstu verkefnin talsetningar á barnaefni fyrir Stöð 3 og kvikmyndin um vaska grísinn Badda. Hljóðsetning starfaði að mestum hluta við hljóðsetningu auglýsinga og fræðsluefnis auk talsetninga á barnaefni.

Hljóðsetning gekk í gegnum ýmiskonar eignarhald þar til Skífan keypti það og sameinaði það rekstri Sýrlands.

Stafræna hljóðupptökufélagið

Stafræna hljóðupptökufélagið var stofnað 1996 af Sveini Kjartanssyni og Ara Daníelssyni og starfaði nær eingöngu við upptökur á klassískri tónlist og djassi.